Natalia Duarte
Modern & Historical Violist, Pedagogue

Credits: Erin McKinney
Natalia Duarte (f. 1985) er víóluleikari frá Kosta Ríka, nú búsett í Reykjavík. Hún lærði á nútímavíólu við Háskólann í Arizona, upprunaflutning og barokkvíólu við ESMUC (Barcelona), Scuola Civica di Milano og Conservatorio di Verona, auk tónlistaruppeldisfræði við Conservatorio di Padova. Natalia hefur leikið með fjölda hljómsveita og kammerhópa sem sérhæfa sig í sögulega upplýstum tónlistarflutningi víðs vegar um Evrópu og hefur tekið upp tónlist með ýmsum hópum fyrir Naxos, Lindoro, CPO og Da Vinci.
Á Íslandi hefur hún unnið með ýmsum tónlistarhópum, þar á meðal Barokkbandinu Brák, Cauda Collective, Camerarctica, Kammersveit Breiðholts og ConsorTico, sem kom fram á fyrstu Reykjavik Early Music Festival árið 2024.
Sem tónlistarkennari vinnur hún með fjölmenningarlegum hópum í verkefninu Tónagull í Hafnarfirði og heldur mánaðarlega tónlistarstund í Norræna húsinu í Reykjavík. Hún tók einnig þátt í Kátt Barnahátíð árið 2024.